Jæja það er heldur betur að styttast í mótið okkar. Mikill undirbúningur og töluverð spenna er hjá okkur hérna í heimavarnarliðinu. Vonandi líst öllum vel á dagskránna okkar en smávægileg breyting er á henni vegna þess að efra skólahúsið er í hálfgerðri rúst vegna málningavinnu og viðgerða. En í staðin gerum við bara eitthvað skemmtilegt með börnunum okkar sem eru orðin ansi mörg!
Nú leggjumst við bara á bæn og biðjum um gott veður, en spáin er okkur nokkuð hliðholl og lítur út fyrir að það verði bara blíða. Eins gott að spáin rætist.
Ástæðan fyrir því að ég ákvað að skrifa hérna inn er sú að Gulla og Gauja eru að vinna í slideshowi, bæði með gömlum myndum af okkur í þessum fagra árgangi og svo með myndum af öllum fallegu börnunum okkar. Vil ég þess vegna biðja ykkur að senda þeim myndir og þá sérstaklega af börnum ykkar því að flestar heimasíður eru læstar og erfitt fyrir þær að ná í myndir á netinu.
Netföngin eru:
guðlaug@teris.is
gudleif@teris.is
Annars hlakkar mig ofsalega mikið til að hitta ykkur og fjölskyldur ykkar, hitti einmitt Helga Svavar og fjölskyldu áðan og varð bara enn spenntari þegar ég frétti að skemmtiatriði væri væntanlegt frá honum og fleiri borgarbúum úr árgangnum en ég ætla ekki að nefna nein nöfn , get þó sagt ykkur að lagið verður tekið. Vonandi eru fleiri eitthvað að undirbúa, kemur i ljós.
Bestu kveðjur
Bogga sem bíður spennt eftir helginni
