**************************
Þá er farið að styttast heldur betur í bekkjarsamkomu okkar. Búið er að ganga frá flestum lausum endum hér á Sigló og er til að mynda búið að ráða Geira á Maxims til að sjá um veislustjórnun, búið að semja við Spaugstofumenn, fyrir utan Randver, um að fara með gamanmál milli rétta, XXX Rotweiler mun sjá um dinnertónlistina, Haffi Haff mun mæta og vera með sýnikennslu á dansi og mun Ríó Tríó svo blasta okkur inn í nóttina með dúndrandi dansleik.
Það er sem sagt allt að verða klárt og nú er bara að finna góðan staur úti í garði þar sem hægt verður að tjóðra börnin og eftir atvikum viðhengin svo þau strjúki ekki yfir Þjóðlagahelgina.
Hlökkum til að sjá ykkur
***************************